
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf á HSU - Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar Hraunbúðir
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
03.03.2025
Umsóknarfrestur
22.04.2025
Sumarstörf á HSU - Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar Hraunbúðir
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir Vestmannaeyjum óskar eftir að ráða sjúkraliða og sjúkraliðanema í skemmtilegt og gefandi starf í sumar með yndislegu heimilisfólki. Á Hraunbúðum eru 30 hjúkrunarrými, 4 dvalarrými og 1 hvíldarrými auk annarrar þjónustu við eldri borgara.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
Sjúkraliðamenntun frá viðurkenndri menntastofnun
Starfsleyfi landlæknis / staðfesting menntastofnunar á framvindu náms
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Um vaktavinnu er að ræða.
Starfshlutfall og upphafsdagur starfs er eftir samkomulagi.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Una Sigríður Ásmundsdóttir, una.s.asmundsdottir@hsu.is
Sími: 4322650

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf á HSU - Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar Hraunbúðir
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
03.03.2025
Umsóknarfrestur
22.04.2025