Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.02.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025
Iðjuþjálfi
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Starfið felst í almennum störfum iðjuþjálfa fyrir einstaklinga og hópa í geðheilsuteymi ásamt þverfaglegu samstarfi við aðrar deildir innan HSS. Iðjuþjálfi ber faglega ábyrgð hvað varðar undirbúning, framkvæmd og skráningu íhlutunar skjólstæðinga teymisins. Hann nýtir viðeigandi matstæki, gerir færnimat, fer í vitjanir til þjónustuþega þegar við á og skipuleggur íhlutunaráætlanir fyrir skjólstæðinga og miðlar nauðsynlegum upplýsingum til annarra. Hlutverk iðjuþjálfa er að stuðla að og viðhalda sjálfstæði skjólstæðinga og efla þá til sjálfshjálpar. Um er að ræða 100% framtíðarstarf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat á getu til iðju, áhuga og aðstæðum skjólstæðinga
Skráning og skýrslugerð
Hafa yfirsýn með þörfum skjólstæðinga og tryggja samfellu í þjónustu
Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
Meta færni, veita færniþjálfun og ráðgjöf
Virk þátttaka í þverfaglegri þjónustu og meðferð skjólstæðinga og aðstandenda
Fræðsla og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda
Skipuleggja og veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni bæði innan teymisins sem og utan HSS
Málastjórnun í einhverjum tilfellum og þverfaglegt samstarf
Aðkoma að mótun starfs iðjuþjálfa innan HSS
Verkefni og samstarf á öðrum deildum innan HSS
Hæfniskröfur
Starfsleyfi frá Embætti Landlæknis
Reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi er kostur
Færni til að vinna sjálfstætt, skipuleggja og forgangsraða verkefnum
Framúrskarandi samskiptahæfni
Jákvæðni, sveigjanleiki og hlýtt viðmót
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Inga Guðlaug Helgadóttir, inga.g.helgadottir@hss.is
Sími: 422-0500
Margrét Blöndal, margret.blondal@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.02.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025