Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf á HSU - Hjúkrunarfræðingar / hjúkrunarnemar á Lyflækningadeild Selfoss

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

11.02.2025

Umsóknarfrestur

22.04.2025

Sumarstörf á HSU - Hjúkrunarfræðingar / hjúkrunarnemar á Lyflækningadeild Selfoss

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarnema í sumarafleysingar á Lyflækningadeild HSU Selfossi. Um er að ræða afar fjölbreytta og krefjandi hjúkrun með metnaðarfullum starfsmönnum.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fjölbreytt hjúkrun lyflæknissjúklinga, sjúklinga í líknandi meðferð, sjúklinga sem eru að jafna sig eftir aðgerðir á Landspítala.

  • Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.

  • Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum.

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun

  • Starfsleyfi landlæknis

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

  • Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um framvindu á menntun, starfsleyfi og fyrri störf.

  • Starfshlutfall er eftir samkomulagi.

  • Ráðningartímabil er frá lok maí - lok ágúst eða eftir samkomulagi.

  • Nemar sem þurfa að safna tímum í klínískri vinnu sérstaklega boðnir velkomnir.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Anna Björk Ómarsdóttir, anna.b.omarsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf á HSU - Hjúkrunarfræðingar / hjúkrunarnemar á Lyflækningadeild Selfoss

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

11.02.2025

Umsóknarfrestur

22.04.2025