Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - Fjöldskyldudeild HSA - SUMARAFLEYSING 2026

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.03.2026

Umsóknarfrestur

01.04.2026

Ljósmóðir - Fjöldskyldudeild HSA - SUMARAFLEYSING 2026

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar að ráða ljósmóður í sumarafleysingu. Um er að ræða 100% stöðu eða skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Afleysing í fæðingarþjónustu og sængurlegu við sjúkrahúsið í Neskaupstað og/eða mæðravernd á Austurlandi.

Hæfniskröfur

Íslensk starfsréttindi ljósmóður. Sónarkunnátta er kostur, en ekki nauðsyn. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Oddný Ösp Gísladóttir

Tölvupóstur: oddny.o.gisladottir@hsa.is

Óli Freyr Axelsson

Tölvupóstur: oli.f.axelsson@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - Fjöldskyldudeild HSA - SUMARAFLEYSING 2026

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.03.2026

Umsóknarfrestur

01.04.2026