Þjónustuaðili
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Sólvangi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
13.01.2025
Umsóknarfrestur
27.01.2025
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Sólvangi
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Sólvangi. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun. Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslunni Sólvangi er fyrst og fremst ætlað að veita íbúum Hafnarfjarðar þjónustu en allir eru velkomnir á stöðina.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Reynsla af kennslu er æskileg
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir, thorunn.johanna.juliusdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6222
Heiða Sigríður Davíðsdóttir, Heida.Sigridur.Davidsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6221
Þjónustuaðili
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Sólvangi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
13.01.2025
Umsóknarfrestur
27.01.2025