Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor á sviði stærðfræðimenntunar hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.01.2025
Umsóknarfrestur
10.02.2025
Lektor á sviði stærðfræðimenntunar hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði stærðfræðimenntunar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni lektorsins verða kennsla og rannsóknir á sviði stærðfræðimenntunar, í kennaramenntun fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla ásamt kennslu á starfsþróunarnámskeiðum
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla námskeiða á sviði stærðfræði og stærðfræðimenntunar í kennaranámi.
Rannsóknir á sviði stærðfræðimenntunar.
Leiðsögn nemenda við gerð lokaverkefna.
Kennsla á starfsþróunarnámskeiðum í stærðfræði.
Þátttaka í mótun stefnu um menntun kennara í stærðfræði.
Hæfniskröfur
Doktorspróf með áherslu á stærðfræðimenntun.
Reynsla af háskólakennslu.
Reynsla af stærðfræðikennslu á öðrum skólastigum, grunnskóla og/eða framhaldsskóla er æskileg.
Reynsla af rannsóknum á sviði stærðfræðimenntunar, sem kemur m.a. fram í birtingum í ritrýndum tímaritum.
Góð færni í íslensku, í ræðu og riti.
Áhersla er lögð á að sá einstaklingur sem starfið hlýtur hafi góða færni í kennslu og rannsóknum, og hafi skýra framtíðarsýn um hlutverk sitt í kennslu og rannsóknum á sviðinu. Þá er krafist góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum. Horft verður til þess að ráðningin falli sem best að aðstæðum og þörfum Deildar faggreinakennslu og sviðsins í heild.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 1. júlí 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.
Á Menntavísindasviði fer fram rannsóknartengt starfsnám fyrir kennara á leik-, grunn- og framhalds- og háskólastigi, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga, og þroskaþjálfa. Lögð er áhersla á rannsóknir og þróunarstarf sem unnið er í samstarfi við starfsvettvang.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Elsa Eiríksdóttir, elsae@hi.is
Lára Rún Sigurvinsdóttir, lararun@hi.is
Sími: 5255905
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor á sviði stærðfræðimenntunar hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.01.2025
Umsóknarfrestur
10.02.2025