Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraþjálfari á endurhæfinga- og öldrunarlækningadeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

20.12.2024

Umsóknarfrestur

15.01.2025

Sjúkraþjálfari á endurhæfinga- og öldrunarlækningadeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Við leitum að sjúkraþjálfara í okkar góða hóp á Kristnesspítala við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). Um er að ræða 75-100% ótímabundna stöðu og er staðan laus frá 01.03.2025 eða eftir nánara samkomulagi. Kjörið tækifæri fyrir reynslubolta sem og nýútskrifaða til að dýpka þekkingu og verða hluti af öflugri liðsheild.

Starfið er fjölbreytt og býður upp á frábær tækifæri til að afla sér faglegrar og sérhæfðrar þekkingar. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða aðlögun undir handleiðslu reyndra sjúkraþjálfara.

Um er að ræða dagvinnu, vinnuvika starfsfólks er nú 36 klst. vegna styttingar vinnuviku. Við það bætist einstaka vakt um helgar við bráðadeildir sjúkrahússins, sem greitt er aukalega fyrir.

Frábært tækifæri í fjölbreyttu og lærdómsríku starfsumhverfi.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn vinna sjúkraþjálfara í þverfaglegu umhverfi.

  • Þátttaka í þverfaglegum teymum og faglegri þróun.

  • Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda, í hópum og á einstaklingsgrunni.

  • Hópþjálfun.

  • Verkefni og ábyrgð eru í samræmi við reynslu.

  • Fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu við skjólstæðinga, þverfaglegt samstarf og faglega þróun sjúkraþjálfunar.

Hæfniskröfur

  • Fullgilt próf í sjúkraþjálfun og íslenskt starfsleyfi.

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, reynslu og áhuga, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 75-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Ragnhildur Jónsdóttir, ragnhildur@sak.is

Sími: 852-5608

Kristín Margrét Gylfadóttir, kmg0918@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraþjálfari á endurhæfinga- og öldrunarlækningadeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

20.12.2024

Umsóknarfrestur

15.01.2025