Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.12.2024
Umsóknarfrestur
15.01.2025
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Matvælastofnun leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf á sviði matvælaöryggis og/eða velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvesturumdæmi. Um 100% starf er að ræða en lægra starfshlutfall kemur til greina. Starfið heyrir undir héraðsdýralækni Norðvesturumdæmis.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit með velferð dýra felur meðal annars í sér reglubundið eftirlit með búfjárhaldi, móttöku og úrvinnslu tilkynninga sem varða dýravelferð og eftirliti með skráningum í gagnagrunna um dýrahald ásamt öðrum eftirlitsverkefnum.
Eftirlit með matvælaöryggi felur í sér eftirlit með matvælavinnslum, svo sem mjólkurvinnslum, kjötvinnslum, fiskvinnslum og í fiskiskipum.
Að auki getur verið um að ræða eftirlit með fóðri, áburði og aukaafurðum dýra.
Starfið krefst ferðalaga um Norðvesturland.
Hæfniskröfur
Búvísinda- eða búfræðimenntun, matvælafræði, mjólkurtæknifræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af búfjárhaldi og umgengni við búfé af öllum tegundum æskileg
Haldbær þekking og reynsla af vinnu við vinnslu matvæla æskileg
Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
Þekking á HACCP aðferðafræðinni æskileg
Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
Góð almenn tölvukunnátta
Vilji / hæfni til að starfa í teymi
Góð framkoma og lipurð í samskiptum
Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku
Bílpróf er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Daníel Haraldsson, daniel.haraldsson@mast.is
Sími: 530-4800
Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.12.2024
Umsóknarfrestur
15.01.2025