Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing á dagdeild lyflækninga - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025
Sumarafleysing á dagdeild lyflækninga - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Langar þig að nýta þekkingu þína og hæfileika og vinna í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?
Við leitum að bæði hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í sumarafleysingar í okkar öfluga teymi á dagdeild lyflækninga. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.
Hvað gerir starfið spennandi:
Reynsla sem skiptir máli
Tækifæri til að læra í hvetjandi vinnuumhverfi
Teymisvinna
Fagleg þróun
Vaktavinna
Góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í okkar frábæra teymi og fá verðmæta reynslu í hjúkrun, þá er þetta sumarstarf fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
Unnið samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Fjölbreytt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi
Góð handleiðsla frá reyndum hjúkrunarfræðingum
Hæfniskröfur
Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og starfsleyfi. Starfsreynsla í hjúkrun er æskileg
Hjúkrunarfræðinemar skulu helst hafa lokið 3 árum í hjúkrunarfræði
Áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Inga Margrét Skúlad. Langdal, inga@sak.is
Sími: 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing á dagdeild lyflækninga - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025