Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í umönnun á K2 Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.12.2024
Umsóknarfrestur
06.01.2025
Starfsmaður í umönnun á K2 Landakoti
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt starfsumhverfi?
Við leitum eftir áhugasömum starfsmanni sem hefur ánægju af samstarfi við aldraða. Ef þú ert lífsglaður og metnaðarfullur starfsmaður þá viljum við fá þig í vinnu. Í boði er gefandi starf fyrir þann sem vill taka þátt í meðferð og endurhæfingu aldraðra þar sem markmiðið er að auka lífsgæði og færni til athafna daglegs lífs. Á deildinni starfar samhentur og þverfaglegur hópur. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Starfshlutfall er 80-100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í þróun og umbótum í starfsemi deildarinnar
Hæfniskröfur
Reynsla af umönnun æskileg
Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, aðhlynning, aldraðir, umönnun, hjúkrun, teymisvinna
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Friðriksdóttir, johannaf@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í umönnun á K2 Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.12.2024
Umsóknarfrestur
06.01.2025