Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti landlæknis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.12.2024
Umsóknarfrestur
06.01.2025
Embætti landlæknis
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir embætti landlæknis laust til umsóknar. Um embættið fer samkvæmt lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Heilbrigðisráðherra fer með yfirstjórn heilbrigðismála og skipar landlækni til fimm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa sérfræðimenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar. Leitað er að einstaklingi með samskipta- og leiðtogahæfileika og góða þekkingu og reynslu af rekstri og stefnumótun.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjararáð ýmsir hafa gert.
Landlæknir ber ábyrgð á því að embættið starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf. Hann ber jafnframt ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma embættisins séu í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Hlutverk landlæknis, samkvæmt lögum, er meðal annars að:
veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, fagfólki og almenningi ráðgjöf og fræðslu um málefni á verksviði embættisins,
annast forvarna- og heilsueflingarverkefni,
efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa og styðja við menntun á sviði lýðheilsu,
vinna að gæðaþróun,
hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum,
hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna,
hafa eftirlit með starfsemi lífsýnasafna og safna heilbrigðisupplýsinga í samræmi við lög um lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga,
veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og reglugerða til notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta,
stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma,
sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu,
bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög,
safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu,
meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann saman við sett markmið,
stuðla að rannsóknum á starfssviðum embættisins,
sinna öðrum verkefnum sem honum eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.
Skipað verður í embættið frá 1. mars 2025. Um kjör landlæknis fer samkvæmt skv. 39. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Ásta Valdimarsdóttir, asta.valdimarsdottir@hrn.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti landlæknis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.12.2024
Umsóknarfrestur
06.01.2025