Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2025 á Kristnesspítala - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025
Sumarstörf 2025 á Kristnesspítala - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
Ertu góður liðsmaður og langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?
Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir hjúkrunarfræðingum/hjúkrunarfræðinemum í sumarafleysingu á Kristnesspítala. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.
Hvað gerir starfið spennandi:
Reynsla sem skiptir máli
Tækifæri til að læra í hvetjandi vinnuumhverfi
Teymisvinna
Fagleg þróun
Vaktavinna
Góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í okkar frábæra teymi og fá verðmæta reynslu í hjúkrun, þá er þetta sumarstarf fyrir þig!
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
Að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Hjúkrunarfræðinemar munu aðstoða við daglega hjúkrun og öðlast dýpri þekkingu í ferlum og verkefnum hjúkrunar
Hæfniskröfur
Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Hjúkrunarfræðinemar skulu hafa lokið a.m.k. þremur árum í hjúkrunarfræði en hvetjum einnig nemendur á 1. og 2. ári til þess að sækja um
Starfsreynsla í hjúkrun er kostur
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Eygló Brynja Björnsdóttir, ebb0508@sak.is
Sími: 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2025 á Kristnesspítala - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025