Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2025 á bráðamóttöku - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

28.02.2025

Sumarstörf 2025 á bráðamóttöku - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar

Ertu góður liðsmaður og langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir hjúkrunarfræðingum/hjúkrunarfræðinemum í sumarafleysingu á bráðamóttöku. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.

Hvað gerir starfið spennandi:

  • Reynsla sem skiptir máli

  • Tækifæri til að læra í hvetjandi vinnuumhverfi

  • Teymisvinna

  • Fagleg þróun

  • Vaktavinna

  • Góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í okkar frábæra teymi og fá verðmæta reynslu í hjúkrun, þá er þetta sumarstarf fyrir þig!

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi

  • Hjúkrunarfræðinemar skulu hafa lokið 3 námsárum

  • Starfsreynsla í hjúkrun er kostur

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Ósk Ragnarsdóttir, kristinr@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2025 á bráðamóttöku - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

28.02.2025