Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á bráðamóttöku - Móttökuritari
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025
Sumarafleysingar á bráðamóttöku - Móttökuritari
Vegna sumarafleysinga eru lausar til umsóknar stöður móttökuritara við bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu. Mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf í kringum 20. maí nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka og skráning skjólstæðinga
Símsvörun og úrlausn símtala
Bókanir, uppgjör og annað sem til fellur
Hæfniskröfur
Leitað er eftir ábyrgðarfullum og duglegum einstaklingi með góða tölvufærni og tungumálakunnáttu
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Ósk Ragnarsdóttir, kristinr@sak.is
Sími: 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á bráðamóttöku - Móttökuritari
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025