Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar á bráðamóttöku - Sérhæfð aðstoð

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025

Sumarafleysingar á bráðamóttöku - Sérhæfð aðstoð

Langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?

Við leitum að einstaklingum vegna sumarafleysinga í sérhæfða aðstoð á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérhæfð aðstoð stuðlar að því í samstarfi við annað starfsfólk deildarinnar að deildin sé snyrtileg, hlutirnir ganga hratt og örugglega fyrir sig og að áhöld, útbúnaður og aðrir hlutir séu á sínum stað.

Starfið felur í sér aðstoð við hjúkrunarfræðinga, lækna og móttökuritara sem starfa við deildina. Þessi aðstoð felur m.a. í sér:

  • Umsjón með sjúkrastofum, sérfræðistofum, líni, skoli, eldhúsi, pósti og sjúkrabílainnkeyrslu

  • Fylgjast með þegar sjúklingar fara af stofum og gera þær klárar fyrir móttöku nýrra sjúklinga

  • Flytja sjúklinga yfir á myndgreiningardeild og í aðrar rannsóknir

  • Pöntun og frágangur á lagervörum

  • Umönnun og aðstoð við ADL s.s. svara bjöllum, fylgd á wc o.fl.

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð

  • Heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla af umönnunarstörfum er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Ósk Ragnarsdóttir, kristinr@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar á bráðamóttöku - Sérhæfð aðstoð

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025