Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Deildarritari og aðstoðarmaður
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025
Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Deildarritari og aðstoðarmaður
Vegna sumarafleysinga eru laus til umsóknar staða deildarritara og aðstoðarmanns við lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Næsti yfirmaður er Þóra Ester Bragadóttir deildarstjóri lyflækningadeildar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið skiptist í afleysingu fyrir deildarritara og afleysingu fyrir aðstoðarmann en þau störf skarast
Starfið felur m.a. í sér: flutning sjúklinga, símsvörun og umsjá með ýmsum gögnum, frágang á vörum og áfyllingar, þrif á rúmum og ýmis önnur störf á deild sem til falla.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa almenna þekkingu, auk þess sem lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
Íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Þóra Ester Bragadóttir, thorae@fsa.is
Sími: 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Deildarritari og aðstoðarmaður
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025