Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Móttökuritari

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

40-60%

Starf skráð

12.12.2024

Umsóknarfrestur

06.01.2025

Móttökuritari

Viltu þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf móttökuritar. Um er að ræða tímabundið starf í 40% til 60% eftir samkomulagi, í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga

  • Móttaka tímapantana í afgreiðslu

  • Uppgjör í lok dags

  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar

  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi er kostur

  • Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg

  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslensku og enskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Suðurnesja hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á.

Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.

Starfshlutfall er 40-60%

Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Ástríður Sigþórsdóttir, astridur.sigthorsdottir@hss.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Móttökuritari

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

40-60%

Starf skráð

12.12.2024

Umsóknarfrestur

06.01.2025