Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í almennri hjúkrunarfræði - Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.12.2024

Umsóknarfrestur

08.01.2025

Lektor í almennri hjúkrunarfræði - Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í almennri hjúkrunarfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands.

Almenn hjúkrun miðar að því að veita sjúklingum heilsteypta umönnun sem byggir á vísindum og gagnreyndri þekkingu. Almennar hjúkrunarþarfir sjúklinga eru margþættar og það getur skipt sköpum fyrir árangur meðferðar sjúklings hvernig þeim er mætt. Mikil þörf er á kennslu og rannsóknum í almennri hjúkrunarfræði þar sem tekið er tillit til vaxandi sérþarfa og fjölbreytni meðal sjúklinga.

Leitað er að öflugum einstaklingi með góða þekkingu á og færni í almennri hjúkrun auk þekkingar á sérþörfum og fjölbreytni, til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu kennslu og vísinda í hjúkrunarfræði við deildina.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfi lektors felst fyrst og fremst aðkoma að kennslu í almennri hjúkrun og öðrum grunngreinum hjúkrunarfræðinnar auk þess að taka þátt í þróun kennslu, rannsókna og stjórnun deildar.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf á fræðasviðinu.

  • Sérmenntun á sviði hjúkrunar.

  • Gilt hjúkrunarleyfi á Íslandi.

  • Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.

  • Reynsla af háskólakennslu.

  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur

  • Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.

Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Helga Bragadóttir, helgabra@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í almennri hjúkrunarfræði - Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.12.2024

Umsóknarfrestur

08.01.2025