Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í ónæmisfræði við Læknadeild - Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

37%

Starf skráð

10.12.2024

Umsóknarfrestur

08.01.2025

Lektor í ónæmisfræði við Læknadeild - Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands

Laust er til umsóknar 37% starf lektors í ónæmisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppfylla kennsluskyldu sína innan fræðasviðs ónæmisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands með áherslu á grunnvísindi og aðferðafræði ónæmisfræðinnar, þ.m.t. þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta innan fræðasviðs á Landspítala.

  • Stunda vísindarannsóknir innan fræðigreinarinnar, sinna styrkjaöflun og vinna að nýsköpun á sviði ónæmisfræði

  • Vinna að þróun fræðasviðsins og stuðla að framgangi nemenda og ungra vísindamanna.

  • Hafa umsjón með nemendum í meistara- og doktorsnámi eftir því sem við á.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.

  • Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.

  • Reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klínískri.

  • Reynsla af leiðsögn til æðri háskólagráðu er æskileg.

  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur.

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.

Starfshlutfall er 37%

Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Björn Rúnar Lúðvíksson, bjornlud@landspitali.is

Sími: 5431000

Þórarinn Guðjónsson, tgudjons@hi.is

Sími: 5254879

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í ónæmisfræði við Læknadeild - Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

37%

Starf skráð

10.12.2024

Umsóknarfrestur

08.01.2025