Þjónustuaðili
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæslan Garðabæ - Móttökuritari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
03.12.2024
Umsóknarfrestur
13.12.2024
Heilsugæslan Garðabæ - Móttökuritari
Heilsugæslan Garðabæ leitar að skemmtilegum, jákvæðum og lífsglöðum starfsmanni sem finnst gaman að taka á móti fólki í starf móttökuritara. Um er að ræða starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi. Ef þér finnst gaman að tala við fólk og veita framúrskarandi þjónustu þá viljum við gjarnan fá að heyra frá þér.
Um er að ræða 60% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar n.k. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Uppgjör í lok dags
Afgreiðsla tímapantana í afgreiðslu
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
Flokkun á pósti
Hæfniskröfur
Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg
Reynsla af Sögukerfi kostur
Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Metnaður og sjálfstæði í starfi
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn enskukunnátta æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Anna Garðarsdóttir Edwald, Anna.Gardarsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5500
Þjónustuaðili
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæslan Garðabæ - Móttökuritari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
03.12.2024
Umsóknarfrestur
13.12.2024