Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.12.2024
Umsóknarfrestur
15.01.2025
Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Háskólinn á Akureyri leitar að metnaðarfullum leiðtoga í starf forstöðumanns Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar (SVS). Ráðning er til fimm ára. SVS er rannsókna- og fræðastofnun sem er starfrækt við Háskólann á Akureyri. Um er að ræða nýja rannsókna- og fræðastofnun sem verður til við samruna núverandi stofnunar við Háskólann á Akureyri sbr. l_ög nr. 77, 1. júlí 2024. Sjá einnig_ reglur nr. 1180/2024 um SVS við HA.
Stofnunin er vettvangur rannsókna í norðurslóðafræðum og starfar í alþjóðlegu vísindaumhverfi með áherslu á þverfagleg mannvísindi t.d. félags- og umhverfisvísindi. Hlutverk SVS er:
að afla nýrrar þekkingar í norðurslóðafræðum með því m.a. að stunda rannsóknir í viðfangsefnum er varða velferð íbúa og sjálfbærni svæðisins í tengslum við samfélagsþróun, auðlindanýtingu, aðlögun að loftslagsbreytingum og efnahagsþróun
að vera öndvegissetur og samstarfsvettvangur um málefni norðurslóða sem eflir samfélag rannsakenda um sjálfbæra samfélags- og hagþróun á svæðinu
að starfa með innlendum og erlendum háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum með gagnkvæma öflun og miðlun þekkingar í huga
að taka þátt í að efla kennslu í grunn- og framhaldsnámi í norðurslóðafræðum og heimskautarétti við Háskólann á Akureyri og byggja upp frjótt rannsóknaumhverfi fyrir meistara- og doktorsnema í rannsóknarnámi
að efla íslenska og alþjóðlega miðstöð í málefnum norðurslóða á Akureyri
að standa fyrir fræðslu, málstofum, ráðstefnum og fyrirlestrum um norðurslóðafræði
Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri. Næsti yfirmaður er forseti Hug- og félagsvísindasviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknaáætlun og rekstrar- og fjárhagsáætlun SVS
Framkvæmd stefnu og daglegur rekstur stofnunarinnar
Rækta tengsl stofnunarinnar við innlenda og erlenda samstarfsaðila
Umsóknir um styrki til að fjármagns verkefni og starfsemi innan SVS
Fjármál stofnunarinnar
Útgáfa ársskýrslu stofnunarinnar
Styðja við og stjórna fyrirliggjandi rannsóknarverkefnum, kennslu og starfsemi innan SVS
Vera fulltrúi SVS á fundum, ráðstefnum og í verkefnanefndum
Hæfniskröfur
Forstöðumaður skal hafa hlotið hæfnisdóm sem lektor, dósent eða prófessor á sviði fræða sem tengjast starfsemi stofnunarinnar. Hann skal vera sérfræðingur í málefnum norðurslóðafræða, búa yfir þverfaglegri þekkingu, t.d. á sviði félagsvísinda, umhverfis- og/eða heilbrigðisvísinda. Forstöðumaður skal að jafnaði hafa doktorspróf og þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.
Reynsla af umsóknum um og stjórnun alþjóðlegra rannsóknastyrkja á fagsviði stofnunarinnar skilyrði.
Reynsla af stjórnun og áætlanagerð.
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
Góð færni i upplýsingatækni, t.d. þekking á MS Word, Excel o.fl.
Hæfni til kennslu norðurslóðamálefna og miðlunar í töluðu og rituðu máli, á íslensku og ensku.
Umsókn skal fylgja
Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslu.
Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Tveggja blaðsíðna lýsing á framtíðarsýn umsækjanda fyrir SVS á næstu fimm árum.
Dæmi um þrjár útgefnar greinar ritaðar af umsækjanda. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu verki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur, æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Thomas Barry, tom@unak.is
Sími: 4608028
Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.12.2024
Umsóknarfrestur
15.01.2025