Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á rannsókn
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
03.12.2024
Umsóknarfrestur
16.12.2024
Sjúkraliði á rannsókn
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða í blóðtökur á rannsókn. Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til að slást í hópinn okkar. Um er að ræða 50% starf í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Blóðtaka
Móttaka sýna
Símasvörun
Samskipti við aðrar deildir
Sjá um pökkun sendinga
Þrif á áhöldum
Sjúkraliðar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum deildarinnar.
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Faglegur metnaður
Framúrskarandi samskiptahæfni
Nákvæm og vönduð vinnubrögð
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Helga Hauksdóttir, helga.hauksdottir@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á rannsókn
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
03.12.2024
Umsóknarfrestur
16.12.2024