Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir Blóðbankans

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.12.2024

Umsóknarfrestur

06.01.2025

Yfirlæknir Blóðbankans

Starf yfirlæknis blóðbankaþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar. Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum sérfræðilækni sem er reiðubúinn að leiða og efla starfsemi Blóðbankans ásamt því að tryggja árangursríkt mennta- og vísindastarf. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra, forstöðumann kjarna, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Auk þess er vaxandi samvinna við ónæmisfræðideild og er því um verulegt samstarf milli eininganna að ræða. Viðkomandi þarf því að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar.

Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. mars 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Innan Blóðbankans starfar öflugur hópur samhents teymis reyndra starfsmanna sem vinna í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. Næsti yfirmaður er forstöðumaður klínískrar rannsókna- og blóðbankaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber faglega, fjárhagslega og starfsmannaábyrgð innan Blóðbankans í samráði við deildarstjóra

  • Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt

  • Tryggir árangursríkt mennta- og vísindastarf innan starfseiningar

  • Þróar þjónustu innan ábyrgðarsviðs með áherslu á samhæfingu við aðra starfsemi kjarnans

  • Ber læknisfræðilega ábyrgð á starfsemi einingar í samræmi við stefnu Landspítala

  • Ber ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð sérgreinar með það að markmiði að hún sé hagkvæm og innan rekstrarviðmiða hvers árs

  • Ábyrgðaraðili blóðbankaþjónustu skv. 9.gr. reglugerðar 441/2006 um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs

  • Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í klínískri ónæmisfræði og blóðgjafafræði eða skyldum greinum

  • Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar

  • Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð

  • Reynsla af kennslu, vísinda- og nýsköpunarstörfum er kostur

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Jákvætt lífsviðhorf, lausnarmiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni

  • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumarkandi hugsun

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum

  • Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)

  • Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn

  • Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni

Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir, yfirlæknir,

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Borghildur F. Kristjánsdóttir , borgfk@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir Blóðbankans

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.12.2024

Umsóknarfrestur

06.01.2025