Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri / Specialist in Psychiatry

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

20.11.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025

Sérfræðingur í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri / Specialist in Psychiatry

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir að ráða sérfræðinga í geðlækningum. Um er að ræða 50-100% stöður sem eru lausar nú þegar eða eftir nánar samkomulagi.

Unnið er þverfaglegum teymum í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi. Tækifæri eru til frekari sérhæfingar í starfi ef áhugi er fyrir hendi.Geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina geðdeildin utan höfuðborgarsvæðisins. Deildin þjónar aðallega íbúum norður- og austurlands 18 ára og eldri. Deildin skiptist í legudeild og dag- og göngudeild með fjölbreyttum verkefnum. Góð samvinna er við aðrar sjúkrahúsdeildir, heilsugæslustöðvar, félagsþjónustu sveitarfélaga, geðsvið Landspítalans og stofnanir SÁÁ fyrir fíknisjúklinga. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús, sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir.

-Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur-

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat og greining á vanda sjúklinga

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu á legu- og göngudeild

  • Þátttaka í gæð- og umbótastarfi

  • Þátttaka í kennslu heilbrigisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk tækifæra til rannsóknarvinnu

  • Þjónusta við sjúklinga á stofnunum á norður- og austurlandi

  • Störfunum fylgir vaktskylda og ráðgjöf sérfræðinga á geðsviði

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í geðlækningum

  • Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð

  • Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi og sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu, reynslu og hæfni ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Helgi Þór Leifsson, hl1009@sak.is

Sími: 463-0100

Ragnheiður R Magnúsdóttir, rrm0109@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri / Specialist in Psychiatry

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

20.11.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025