Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknarlögreglumenn í almennri löggæslu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.11.2024
Umsóknarfrestur
06.12.2024
Rannsóknarlögreglumenn í almennri löggæslu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullum rannsóknarlögreglumönnum til starfa. Alls eru lausar til umsóknar 10 stöður. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt störf í almennri löggæslu. Sett verður í stöðurnar frá 1. febrúar 2025 í 6 mánuði með skipun í huga að reynslutíma loknum.
Löggæslusvið embættis sinnir almennri löggæslu en undir sviðið heyra lögreglustöðvar embættisins auk landamæradeildar, aðgerðardeildar og umferðardeildar. Lögreglustöðvar embættisins eru fjórar og dreifast yfir allt starfssvæðið. Markmið stöðvanna er að færa lögreglu eins nálægt sínu nær umhverfi og kostur er enda leggur embættið áherslu á að þekkja samfélagið og skynja hvaða þjónustu það þarfnast.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir öll alltaf. Megin áhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Gildi LRH eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í samræmi við reglugerð 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar: Rannsóknir brota og markvissar afbrotavarnir í samræmi við stefnu, áherslur og markmið LRH. Tryggir fagleg gæði rannsókna og að málshraði sé í samræmi við markmið.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 2 ár að prófi loknu, sbr. 3. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfstig innan lögreglu.
Reynsla af rannsóknum sakamála er æskileg
Þekking og/eða aukin menntun sem nýtist í starfi er kostur
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
Mikið frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol
Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslensku og enskukunnátta
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Hjördís Sigurbjartsdóttir, hjordis@lrh.is
Sími: 444-1000
Heimir Ríkarðsson, heimir@lrh.is
Sími: 444-1000
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknarlögreglumenn í almennri löggæslu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.11.2024
Umsóknarfrestur
06.12.2024