Þjónustuaðili
Hagstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í gagnavísindum rannsókna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.11.2024
Umsóknarfrestur
02.12.2024
Sérfræðingur í gagnavísindum rannsókna
Starfið felur í sér umsjón með rannsóknaþjónustu Hagstofu Íslands sem þjónustar fræðasamfélagið og opinbera aðila með ríkar greiningarþarfir. Samhliða rekstri felst í starfinu hönnun og þróun á rannsóknargagnagrunnum Hagstofunnar og lýsisgagna þeirra með það að leiðarljósi og að bæta þjónustuna og sjálfvirknivæða umsýslu gagna.
Í starfinu felast mikil samskipti við notendur í formi stuðnings við umsækjendur við gerð umsókna og greiningu gagnaþarfa þeirra, tiltekt og skipulagning rannsóknargagna í samstarfi við gagnatækniteymi Hagstofu Íslands og umsýsla með rannsóknarumhverfi Hagstofunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með rannsóknaþjónustu Hagstofu Íslands.
Framþróun rannsóknargagnagrunns Hagstofunnar og lýsigagna hans.
Uppbygging og þróun gagnamiðlunar innviða.
Þróun á aðferðafræði rekjanleikavarna og framkvæmd þeirra .
Umsjón með rannsóknarumhverfi Hagstofunnar (Iðunni).
Samstarf við gagnamiðlun um notendamiða þjónustu.
Samstarf við gagnasvið Hagstofunnar um þróun gagnalaga.
Hæfniskröfur
Framhaldsmenntun á háskólastigi með miklu gagnavísindalegu inntaki doktorsgráða er kostur.
Þekking á venslagagnagrunnum og SQL
Mikil færni á forritunarmáli sem notuð eru við gagnaúrvinnslu, svo sem R, Python eða Julia.
Mikil samskiptafærni
Mikil skipulagsfærni
Sjálfstæði í starfi og drifkraftur
Góð enskukunnátta
Reynsla og þekking á akademískum rannsóknum
Ritfærni á fræðilegum texta
Þekking á gæðastarfi er kostur
Þekking á kerfisstjórnun er kostur
Góð þekking rannsóknaraðferðum félagsvísinda er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Hvað býður Hagstofan upp á?
Krefjandi og spennandi verkefni
Vinnu í samfélagslega mikilvægu hlutverki
Skemmtilegt samstarfsfólk
Gott mötuneyti
Íþróttastyrk
Samgöngustyrk
Sveigjanlegan vinnutíma
Styttingu vinnuvikunnar
Möguleika til fjarvinnu
Hjólageymslu og bílastæði
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Öll sem telja sig hæf í starfið eru hvött til að sækja um óháð kyni og uppruna. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.
Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og vinnur að söfnun gagna, úrvinnslu og birtingu tölfræðilegra upplýsinga um landshagi Íslands og þjóðfélagsleg málefni. Hjá Hagstofunni starfar öflugur hópur 125 einstaklinga. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt með sveigjanlegum vinnutíma og styttri vinnuviku. Boðið er upp á heilsustyrk fyrir þá sem hreyfa sig og samgöngustyrk fyrir þá sem nýta umhverfisvænan ferðamáta til vinnu. Virkt starfsmannafélag skipuleggur fjölbreytta viðburði fyrir starfsfólk. Leiðarljós Hagstofunnar eru þjónusta - áreiðanleiki - framsækni. Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á vef Hagstofunnar www.hagstofa.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Arnar Þórðarson, olafur.a.thordarson@hagstofa.is
Jóda Elín V. Margrétardóttir, joda.e.v.margretardottir@hagstofa.is
Þjónustuaðili
Hagstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í gagnavísindum rannsókna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.11.2024
Umsóknarfrestur
02.12.2024