Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Tímabundið starf á erfða- og sameindalæknisfræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2024

Umsóknarfrestur

29.11.2024

Tímabundið starf á erfða- og sameindalæknisfræðideild

Við leitum eftir háskólamenntuðum einstaklingi í tímabundið starf til eins árs á erfða- og sameindalæknisfræðideild. Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, sjálfstæður, hafa góða samskiptahæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi.

Upphaf starfs er samkomulag en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Vinnutími er frá kl. 8-16, virka daga.

Erfða- og sameindalæknisfræðideild heyrir undir rannsóknarþjónustu og fara þar fram greiningar, vísindarannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í faginu. Á deildinni starfa um 40 einstaklingar í öflugu þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusturannsóknir í sameindaerfðafræðirannsóknum og önnur verkefni tengd starfsemi deildarinnar

  • Skil á svörum samkvæmt stöðluðum aðferðalýsingum og viðeigandi verklagsreglum

  • Að stuðla að faglegu starfi, gæðum og framförum í rannsóknum innan deildarinnar

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í náttúrufræði, lífeindafræði, lífefnafræði, líffræði eða sambærilegum greinum

  • Eins árs starfsþjálfun á sérhæfðum rannsóknarstofum heilbrigðisstofnana eða hafa framhaldsmenntun í greinum heilbrigðis­vísinda

  • Sérmenntun og/eða starfsreynsla á sviði erfðarannsókna æskileg

  • Reynsla af vinnu við klínískar rannsóknir í erfðafræði æskileg

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð

  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma

  • Hæfni til að starfa í teymi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, náttúrufræðingur, lífeindafræðingur, rannsóknir, heilbrigðisvísindi

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Eiríkur Briem, eirikubr@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Tímabundið starf á erfða- og sameindalæknisfræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2024

Umsóknarfrestur

29.11.2024