Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í bráðahjúkrun
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.11.2024
Umsóknarfrestur
25.11.2024
Sérfræðingur í bráðahjúkrun
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja auglýsir eftir sérfræðingi í bráðahjúkrun.
Slysa- og bráðamóttaka Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja flutti í nýtt og endurgert húsnæði árið 2023 með fullkominni aðstöðu til móttöku bráðveikra og slasaðra. Komur á bráðamóttökuna eru um 15.000 á ári.
Meginhlutverk sérfræðings í bráðahjúkrun er að þróa, samræma og skipuleggja þjónustu við bráðasjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir. Einnig veitir viðkomandi ráðgjöf, sér um kennslu til starfsfólks og nemenda auk rannsóknar- og þróunarvinnu. Hann ber ábyrgð á að skipuleggja störf sín þannig að þau nýtist sjúklingum sem best. Um er að ræða nýtt starf við stofnunina.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun sjúklinga
Þróun hjúkrunar og uppbygging þjónustu innan sérgreinar
Ráðgjöf til sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks
Innleiðing nýrra verkferla sem byggja á gagnreyndri þekkingu
Kennsla og fræðsla
Rannsóknir og gæðastörf
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun, sbr. reglugerð nr.512/2013
Yfirgripsmikil þekking og klínísk færni til að leysa viðfangsefni er lúta að hjúkrun og meðferð bráðasjúklinga
Hæfni til að veita ráðgjöf
Mjög góð forystu- og leiðtogahæfni
Mjög góð samskiptahæfni og geta til að vinna í þverfaglegum teymum
Fagmennska, umhyggja og virðing í samskiptum
Þekking og færni í notkun viðeigandi klínískra kerfa og gagnagreiningu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá þar sem fram kemur reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða og þróunarverkefnum. Afrit af prófskírteinum og starfsleyfi ásamt ítarlegu kynningarbréfi.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins sem byggir á innsendum gögnum og viðtölum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Ásta Kristbjörg Bjarnadóttir, asta.k.bjarnadottir@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í bráðahjúkrun
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.11.2024
Umsóknarfrestur
25.11.2024