Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Þjóðminja­safn Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Umjónarmaður húsnæðis- og öryggismála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2024

Umsóknarfrestur

25.11.2024

Umjónarmaður húsnæðis- og öryggismála

Laust er til umsóknar fullt starf umsjónarmanns húsnæðis- og öryggismála í Þjóðminjasafni Íslands. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér ábyrgð og daglega umsjón með öryggismálum og húsnæði safnsins ásamt viðhaldi og rekstri öryggiskerfa, húsnæðis og bifreiða. Leitað er að vandvirkum, þjónustulunduðum og úrræðagóðum einstaklingi með góða almenna tækniþekkingu.

Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011, safnalaga nr. 141/2011 og laga um menningarminjar nr. 80/2012.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg umsjón með húsnæðis- og öryggismálum safnsins, eftirlit með virkni öryggis-, hús- og loftræstikerfa og samskipti við þjónustuaðila.

  • Dagleg umsjón með góðri umgengni um húsnæði safnsins, jafnt skrifstofu- og sýningarhúsnæði, minni háttar viðhald og samskipti við þjónustuaðila og iðnaðarmenn.

  • Þátttaka í viðhaldi öryggishandbóka og reglulegri öryggisfræðslu og eftirlit með þjónustu öryggisfyrirtækja.

  • Vinnur tillögur að viðhaldsáætlunum og annast samskipti við iðnaðarmenn.

  • Innkaup og öflun tilboða.

  • Umsjón með bifreiðum safnsins, lóðum og sorphirðumálum.

  • Er fulltrúi safnsins í öryggisnefnd og tekur þátt í þjálfun starfsfólks á öryggiskerfi og rýmingu.

  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. iðn- eða tæknimenntun.

  • Reynsla af hússtjórnarkerfum og öryggiskerfum æskileg.

  • Góð almenn tölvuþekking.

  • Verklagni, vinnusemi, ákveðni, frumkvæði og vönduð vinnubrögð.

  • Góð heilsa/líkamlegt hreysti, snyrtimennska og samstarfslipurð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og SFR.

Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ferilskrá með greinargóðum upplýsingum um störf umsækjenda og menntun, nöfnum a.m.k. tveggja umsagnaraðila ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um enda er við ráðningar í störf hjá safninu tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Þorbjörg Gunnarsdóttir, Thorbjorg@thjodminjasafn.is

Sími: 864-7900

Ingibjörg Eðvaldsdóttir, ingibjorg.edvaldsdottir@thjodminjasafn.is

Sími: 863-5511

Þjónustuaðili

Þjóðminja­safn Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Umjónarmaður húsnæðis- og öryggismála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2024

Umsóknarfrestur

25.11.2024