Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - Heilsugæslan Garðabæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70%

Starf skráð

07.11.2024

Umsóknarfrestur

18.11.2024

Ljósmóðir - Heilsugæslan Garðabæ

Við leitum að ljósmóður sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 70% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Hjá Heilsugæslunni Garðabæ starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu..

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið ljósmóður er mæðravernd, leghálsskimanir og getnaðarvarnaráðgjöf ásamt ung- og smábarnavernd.

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.

Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði

  • Starfsleyfi sem ljósmóðir

  • Reynsla af leghálsskimunum

  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð æskileg

  • Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur

  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá

  • Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf

  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæði í starfi

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 70%

Umsóknarfrestur er til og með 18.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Björnsdóttir, margret.bjornsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5500

Ásmundur Jónasson, asmundur.jonasson@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5500

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Ljósmóðir - Heilsugæslan Garðabæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70%

Starf skráð

07.11.2024

Umsóknarfrestur

18.11.2024