Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri áfengis- og vímuefnaráðgjafar á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.11.2024
Umsóknarfrestur
18.11.2024
Verkefnastjóri áfengis- og vímuefnaráðgjafar á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Við óskum eftir að ráða áfengis- og vímuefnaráðgjafa í verkefnastjórastöðu á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma.
Markhópur meðferðareiningarinnar eru einstaklingar með tvíþættan vanda; alvarlega geðsjúkdóma og alvarlegan fíknivanda. Á meðferðareiningunni fer fram eftirfarandi starfsemi:
Dagdeild - Teigur
Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma
Göngudeild geð- og fíknisjúkdóma
Afeitrunardeild ólögráða ungmenna
Um er að ræða spennandi og gefandi starf þar sem unnið er í þverfaglegum teymum. Áherslur í starfinu eru meðal annars skaðaminnkun, batamiðuð hugmyndafræði, áhugahvetjandi samtal, hugræn atferlismeðferð og geðlæknisfræði. Fyrirhugað er að viðkomandi starfi þvert á meðferðareininguna, sinni bæði klínískum verkefnum og vinni að stefnumótun og þróun verklags og starfs áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Mikil tækifæri eru til vaxtar og sérhæfingar. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingsmiðuð.
Ráðið verður í starfið frá 1. desember 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða starf í dagvinnu og starfshlutfall er 80-100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
Virk þátttaka í þverfaglegum teymum
Samskipti, hvatning og víðtækur stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur þeirra
Stefnumótun og þróun þjónustu á sviði áfengis- og vímuefnaráðgjafar
Þátttaka í fræðslu- og umbótastarfi meðferðareiningarinnar
Samhæfing verklags á sviði áfengis- og vímuefnaráðgjafar
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi
Framhaldsmenntun á háskólastigi í fíkniráðgjöf
Háskólamenntun á sviði stjórnunar/verkefnastjórnunar
Reynsla af verkefnastjórnun
Reynsla af starfi með markhóp einingarinnar
Faglegur metnaður og einlægur áhugi á skaðaminnkun og áfengis- og vímuefnaráðgjöf
Góð samskiptahæfni, jákvætt hugarfar og metnaður
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
Góð almenn tölvukunnátta
Góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, verkefnastjórnun, sérfræðistörf, áfengis- og vímuefnaráðgjafi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Birna Óskarsdóttir, birnaos@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri áfengis- og vímuefnaráðgjafar á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.11.2024
Umsóknarfrestur
18.11.2024