Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir heilsugæsla - Afleysing
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-90%
Starf skráð
07.11.2024
Umsóknarfrestur
28.11.2024
Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir heilsugæsla - Afleysing
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í afleysingastöðu til eins árs á heilsugæsluna á Egilsstöðum. Staðan er laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi og er starfshlutfall er 90%.
Möguleiki er á aðstoð við útvegun húsnæðis og gott aðgengi er að leikskólum á svæðinu.
Egilsstaðir er um 3.000 manna bæjarfélag í fallegu og fjölskylduvænu umhverfi. Í bænum er leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli og ýmis tækifæri til íþróttaiðkunar. Flott skíðasvæði í Stafdal og margir möguleikar á að stunda útivist.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn heilsugæsluþjónusta. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf á heilsugæslu þar sem unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs. Hjúkrunarfræðingar sinna auk þess bakvöktum utan dagvinnutíma.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Kostur er að viðkomandi hafi viðbótarnám í heilsugæsluhjúkrun.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er -90%
Umsóknarfrestur er til og með 28.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Björnsdóttir, gudbjorg.bjornsdottir@hsa.is
Jónína Guðrún Óskarsdóttir, jonina.g.oskarsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir heilsugæsla - Afleysing
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-90%
Starf skráð
07.11.2024
Umsóknarfrestur
28.11.2024