Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

DMR

Upplýsingar um starf

Starf

Embætti héraðsdómara laust til umsóknar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.01.2026

Umsóknarfrestur

27.01.2026

Embætti héraðsdómara laust til umsóknar

Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum.

Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf héraðsdómara.

Frekari upplýsingar um starfið

Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.

Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 27. janúar nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.01.2026

Þjónustuaðili

DMR

Upplýsingar um starf

Starf

Embætti héraðsdómara laust til umsóknar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.01.2026

Umsóknarfrestur

27.01.2026