Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðsfulltrúi

Staðsetningar

Norðurland eystra

Norðurland vestra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

05.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026

Mannauðsfulltrúi

Ert þú nákvæma talnatýpan sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk?

Mannauðssvið Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða jákvæðan, kraftmikinn og skipulagðan aðila í 80% - 100% starf mannauðsfulltrúa.

Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfsstöðvum HSN. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra mannauðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn launavinnsla og yfirferð í Vinnustund

  • Gerð ráðningasamninga

  • Útreikningar á kjörum og réttindum starfsmanna skv. samningum

  • Umbætur og eftirlit með ferlum tengdum starfssviðinu

  • Ráðgjöf við starfsfólk og stjórnendur um málefni sem snúa að launakjörum

  • Launagreiningar

  • Önnur verkefni falin af framkvæmdastjóra mannauðs

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Góða greiningarhæfni, nákvæmni og talnagleggni

  • Góða tölvukunnáttu og tæknilæsi. Góð kunnátta í excel er skilyrði

  • Ríka skipulagshæfni og getu til að forgangsraða og vinna undir álagi

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt lausnamiðað hugarfar

  • Drifkraft, metnað og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Mjög góða færni í íslensku og góða enskukunnáttu

  • Ökuleyfi, hreint sakavottorð og gott orðspor


Frekari upplýsingar um starfið

Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldrunarþjónustu í formi hjúkrunar- og dvalarrýma. Meginstarfstöðvar HSN eru starfstöðvarnar á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru rúm 37.000 og starfsfólk er rúmlega 800.

Hjá HSN er lögð rík áhersla á vellíðan á vinnustað og heilsueflingu. Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna – Virðing

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert og leggur HSN áherslu á að greiða samkeppnishæf laun.

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Ólafsdóttir

Tölvupóstur: sigga@mognum.is

Hildur Ösp Gylfadóttir

Tölvupóstur: hildur.osp.gylfadottir@hsn.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðsfulltrúi

Staðsetningar

Norðurland eystra

Norðurland vestra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

05.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026