Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á vinnuverndarsviði

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.11.2025

Umsóknarfrestur

15.12.2025

Sérfræðingur á vinnuverndarsviði

Vilt þú stuðla að vinnuvernd með skoðun vinnuvéla? Vilt þú vera hluti af öflugri liðsheild sem stuðlar að vinnuvernd og öryggi?

Vinnueftirlitið óskar eftir að ráða metnaðarfullan, sjálfstæðan og drífandi einstakling með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum í teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði.
Viðkomandi mun koma til með að sinna skoðunum á vinnuvélum og tækjum ásamt því að veita leiðbeiningar á sviði vinnuverndar og vinna að sérverkefnum.
Gleði, lausnarmiðað hugarfar og léttleiki eru eiginleikar sem við leitum að.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjanesbæ. Skoðunarsvæðið er almennt Reykjanesið en einnig geta komið til skoðanir á öðrum landsvæðum sem og á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum getur verið um lengri ferðalög að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd eftirlits með skoðunarskyldum vinnuvélum og tækjum (lyftarar, jarðvinnuvélar, kranar, húsalyftur, vinnulyftur, katlar og aðrar tilfallandi vinnuvélar og tæki). Í því felst meðal annars skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum sem sett eru fram.

  • Þátttaka í umbótastarfi og þróun eftirlits með vinnuvélum, húsalyftum og tækjum sem stofnunin sinnir.

  • Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu.

  • Sinnir verklegum og skriflegum prófum á vinnuvélar og tæki.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem vélvirkjun, rafvirkjun, bifvélavirkjun, vélfræði eða sambærilegt.

  • Sérhæfð reynsla sem nýtist í starfi, svo sem vinna við stjórnun og eða viðgerðir vinnuvéla.

  • Sérhæfð þekking sem nýtist við skoðanir og eftirlit.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði.

  • Rík þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Frumkvæði og framsýni.

  • Góð hæfni í samskiptum.

  • Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Vinnueftirlitið þróast í takt við örar breytingar á vinnumarkaði og leggur sig fram við að vera góður vinnustaður með heilbrigða vinnustaðamenningu. Markmiðið er að stuðla að vellíðan, heilsu og öryggi starfsfólks þannig að öll komi heil heim. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinbers starfsfólks og er markmið Vinnueftirlitsins að greiða laun eins og best gerist hjá ríkinu. Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á vefsíðu hennar www.vinnueftirlit.is.

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og með henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir

sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar

Tölvupóstur: bergrun.sigurjonsdottir@ver.is

Heimir Guðmundsdóttir

sviðsstjóri sviðs vinnuverndar

Tölvupóstur: heimir.gudmundsson@ver.is

Lea Kristín Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: leakristin@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á vinnuverndarsviði

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.11.2025

Umsóknarfrestur

15.12.2025