Þjónustuaðili
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
08.11.2024
Umsóknarfrestur
21.11.2024
Lögfræðingur
Úrskurðarnefnd velferðarmála óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa, í 80% starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnin eru fjölbreytt og felast aðallega í túlkun og beitingu réttarreglna á sviði almannatrygginga, atvinnuleysistrygginga, barnaverndarmála, félagsþjónustu- og húsnæðismála, fæðingar- og foreldraorlofsmála svo og greiðsluaðlögunarmála.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði.
Þekking á sviði stjórnsýsluréttar er æskileg.
Starfið krefst lipurðar í samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og sjálfstæðis til verka.
Frekari upplýsingar um starfið
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Stéttarfélags lögfræðinga.
Umsóknir skulu berast til úrskurðarnefndar velferðarmála, á netfangið postur@urvel.is eigi síðar en 21. nóvember nk.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 21.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir formaður
Sími: 551 8200
Þjónustuaðili
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
08.11.2024
Umsóknarfrestur
21.11.2024