Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í yfirsýn fjármálainnviða

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Sérfræðingur í yfirsýn fjármálainnviða

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing með þekkingu á fjármálainnviðum í deild rekstrarlegra áhættuþátta á sviði varúðareftirlits. Leitað er að einstaklingi til að taka þátt í að móta eftirlit og yfirsýn með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum íslenska fjármálamarkaðarins, sem skiptast í grunninnviði og kjarnainnviði.

Seðlabankinn fylgist með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni fjármálainnviða og gerir tillögur að úrbótum þegar þess gerist þörf. Yfirsýn er höfð með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum (til að mynda millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands). Yfirsýn Seðlabankans felur í sér reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra innviða.

Í deild rekstrarlegra áhættuþátta starfar öflugur hópur sérfræðinga að verkefnum sem m.a. snúa að mati á rekstraráhættu, upplýsingatækniáhættu, og stjórnarháttum. Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Auk þess hefur sviðið yfirsýn og reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra fjármálainnviða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra innviða, þ.m.t. á grundvelli áhættumats

  • Yfirsýn yfir þróun áhættu tengd fjármálainnviðum

  • Þróa aðferðafræði yfirsýnar bankans með kerfislega mikilvægum innviðum

  • Rita matsskýrslur í kjölfar úttekta

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Þekking á greiðslumiðlun og greiðsluþjónustu

  • Þekking eða reynsla af störfum í eftirliti og/eða innri endurskoðun er kostur

  • Tæknileg þekking á virkni greiðslumiðlunar á íslenska fjármálamarkaðnum og/eða á evrópska markaðnum, t.d. SWIFT, Millibankakerfi og Target (TIPS, T2) er kostur

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu

  • Frumkvæði, heiðarleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Frekari upplýsingar veita Kristín Logadóttir, forstöðumaður rekstrarlegra áhættuþátta, (kristin.logadottir@sedlabanki.is) og Hólmfríður Þorvaldsdóttir, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar, (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl nk.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í yfirsýn fjármálainnviða

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026