
Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sauðárkrókur – starfsmaður
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Sauðárkrókur – starfsmaður
Vínbúðin Sauðárkróki óskar eftir starfsmanni í fullt starf. Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
Umhirða búðar
Hæfniskröfur
Jákvæðni og góð þjónustulund
Hæfni í mannlegum samskiptum
Almenn tölvukunnátta
Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.
Sakavottorðs er krafist.
Frekari upplýsingar um starfið
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á vinbudin.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
ÁTVR rekur 50 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks. Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti og eflum þannig þekkingu og kraft fyrirtækisins. Við viljum að starfsfólkið njóti þess að þróa fyrirtækið þannig að það þjóni viðskiptavinum sem best.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sauðárkrókur – starfsmaður
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026