Þjónustuaðili
Vinnueftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
09.02.2026
Umsóknarfrestur
24.02.2026
Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Viltu ganga til liðs við okkur hjá Vinnueftirlitinu?
Við leitum að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi í sumarstarf í þjónustumiðjunni okkar. Um tímabundið starf er að ræða sumarið 2026.
Jákvætt, opið og lausnarmiðað hugarfar eru eiginleikar sem við leitum að.
Um er að ræða 100% starf sem er sinnt frá starfstöð Vinnueftirlitsins í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónustufulltrúar annast móttöku og afgreiðslu fyrirspurna frá viðskiptavinum í gegnum síma, netspjall, tölvupóst og afgreiðslu ásamt því að veita ráðgjöf, sinna skráningu og úrvinnslu beiðna.
Hæfniskröfur
Stúdents eða iðnmenntun
Frumkvæði og framsýni
Góð hæfni í samskiptum og rík þjónustulund
Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur
Góð almenn tölvukunnátta og færni er nauðsynleg
Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli er skilyrði
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
Hreint sakavottorð skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
óður vinnustaður með heilbrigða vinnustaðamenningu. Markmiðið er að stuðla að bættri vellíðan, heilsu og öryggi starfsfólks þannig að öll komi heil heim. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinbers starfsfólks og er markmið Vinnueftirlitsins að greiða laun eins og best gerist hjá ríkinu. Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.
Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um umsagnaraðila ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstudd hæfni viðkomandi sem nýtast mun í starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 24.febrúar næstkomandi.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út og öllum umsóknum verður svarað.
Vinsamlegast sækið um á alfred.is. Við hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar (bergrun.sigurjonsdottir@ver.is)
Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á vefsíðu hennar www.vinnueftirlitid.is
Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2026
Þjónustuaðili
Vinnueftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
09.02.2026
Umsóknarfrestur
24.02.2026