Þjónustuaðili
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
Upplýsingar um starf
Starf
Kerfisstjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026
Kerfisstjóri
Viltu vinna með nýjustu skýjalausnir og taka þátt í rekstri mikilvægra upplýsingakerfa?
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða kerfisstjóra til starfa. Við óskum bæði eftir reyndum sérfræðingum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja þróast í faginu.
Sem kerfisstjóri hjá Umbru verður þú hluti af teymi sem ber ábyrgð á stöðugum og öruggum rekstri, ásamt framþróun upplýsingatækniþjónustu fyrir ráðuneyti og aðra ríkisaðila. Við erum í spennandi vegferð við að auka samrekstur, bæta tæknilega innviði og skapa umhverfi sem styður við aukna sjálfvirkni og samvinnu hjá ríkisaðilum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur og viðhald skýjalausna og staðbundinna kerfa
Innleiðing nýrra kerfa og lausna (m.a. öryggislausna frá Microsoft)
Eftirlit með kerfum ásamt atvikastjórnun og bilanagreiningu
Aðstoð við lausn tæknilegra atvika og þjónustubeiðna
Þátttaka í teymisvinnu við þróunar- og umbótaverkefni
Hæfniskröfur
Menntun í tölvunarfræði, kerfisfræði eða á tengdu sviði
Reynsla af kerfisrekstri, skýjalausnum og öryggismálum er kostur
Þekking á Microsoft 365 skýjalausnum
Öguð vinnubrögð og rík öryggisvitund
Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér nýjungar og breytingar
Góð samstarfshæfni
Rík þjónustulund og skipulagshæfni
Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Hvað við bjóðum
Fjölbreytt og krefjandi verkefni
Tækifæri til að vinna með nýjustu skýja- og öryggislausnir
Traust og sveigjanlegt vinnuumhverfi
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Lea Kristín Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: leakristin@intellecta.is
Þjónustuaðili
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
Upplýsingar um starf
Starf
Kerfisstjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026