Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Hugverka­stofan

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026

Lögfræðingur

Hugverkastofan leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpun og hugverkum í starf lögfræðings. Í boði er spennandi starf í nútímalegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu hjá metnaðarfullri stofnun sem starfar í alþjóðlegu umhverfi. Starfið er á hugverka- og stjórnsýslusviði. Nánari upplýsingar er að finna á www.hugverk.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Túlkun laga, reglugerða og fordæma við úrlausn málá.

  • Meðhöndlun umsókna, skráninga og erinda.

  • Undirbúningur stjórnvaldsákvarðana og úrskurða.

  • Leiðbeiningar til viðskiptavina.

  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi samkvæmt ákvörðun yfirmanns.

  • Þátttaka í teymisvinnu.

  • Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði, meistarapróf á sviði hugverkaréttar er kostur.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og hæfni til að vinna í teymi.

  • Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.

  • Lausnamiðuð rökhugsun og greiningarhæfni.

  • Nákvæmni í vinnubrögðum.

  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Þekking eða reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is)

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.03.2026

Þjónustuaðili

Hugverka­stofan

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.02.2026

Umsóknarfrestur

02.03.2026