
Þjónustuaðili
Mannréttindastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk hjá Mannréttindastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
09.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026
Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk hjá Mannréttindastofnun Íslands
Mannréttindastofnun Íslands leitar að einstaklingi til að starfa við réttindagæslu fatlaðs fólks. Starfið felur í sér bein og fagleg samskipti við einstaklinga, þar á meðal símtöl, vettvangsheimsóknir, leiðbeiningar og eftirfylgni í málum sem varða réttindi einstaklinga. Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem hefur faglega þekkingu og skilning á aðstæðum fatlaðs fólks og býr yfir hæfni til að eiga samskipti við fólk sem notar óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eða þarfnast stuðnings til að koma vilja sínum á framfæri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks er að fylgjast með mannréttindum fatlaðs fólks og veita því viðeigandi stuðning við réttindagæslu, í samræmi við lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Verkefni felast m.a. í að:
Veita fötluðu fólki leiðbeiningar og stuðning til að standa vörð um réttindi sín og sjálfsákvörðunarrétt
Eiga í beinum samskiptum við einstaklinga, þar á meðal með óhefðbundnum tjáskiptaleiðum
Heimsækja vettvang, hitta einstaklinga í þeirra umhverfi og byggja upp traust og tengsl
Koma sjónarmiðum og réttindum fatlaðs fólks á framfæri gagnvart þjónustuaðilum og stofnunum og eftir atvikum fylgja málum eftir
Veita upplýsingar um réttindi fatlaðs fólks samkvæmt íslenskum lögum og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Starfa í teymi réttindagæslumanna innan Mannréttindastofnunar Íslands
Hæfniskröfur
Starfsréttindi frá landlækni á sviði félagsráðgjafar, sálfræði, þroskaþjálfunar eða annað sambærilegt nám
Þekking á réttindum fatlaðs fólks og viðeigandi löggjöf ásamt þjónustu- og stuðningsúrræðum
Reynsla af samskiptum við fatlað fólk
Færni í notkun óhefðbundinna tjáskiptaleiða og stuðningi við fólk með fjölbreyttar stuðningsþarfi kostur
Hæfni til að hlusta, skilja aðstæður einstaklinga og miðla upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt
Mjög góð samskiptahæfni
Jákvætt viðmót, þjónustulund og hugarfar grósku
Skipulagshæfni, greiningarfærni og frumkvæði
Reynsla af teymisvinnu kostur
Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
Hreint sakavottorð
Í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Parísarviðmið um sjálfstæðar mannréttindastofnanir leggur Mannréttindastofnun Íslands áherslu á fjölbreytni í starfsliði sínu og hvetur fatlað fólk sérstaklega til að sækja um.
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Öll sem hafa áhuga eru hvött til að sækja um en við ráðningu verður tekið mið af lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 og lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem gerðar eru. Um laun fer samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert. Umsókn gildir í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um Mannréttindastofnun Íslands
Verkefni réttindagæslu fyrir fatlað fólk er sinnt innan Mannréttindastofnunar Íslands, sem hefur það hlutverk að efla og vernda mannréttindi á Íslandi og hefur meðal annars eftirlit með framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Réttindagæsla fatlaðs fólks starfar samkvæmt 9. gr. laga um Mannréttindastofnun Íslands nr. 88/2024 og III. kafla laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011.
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét María Sigurðardóttir
Tölvupóstur: margret.m.sigurdardottir@mannrettindi.is
Geirlaug Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: geirlaug@hagvangur.is

Þjónustuaðili
Mannréttindastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðgjafi í réttindagæslu fyrir fatlað fólk hjá Mannréttindastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
09.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026