Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur – aðgerðir gegn peningaþvætti og hæfismál

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

11.12.2025

Lögfræðingur – aðgerðir gegn peningaþvætti og hæfismál

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa í teymi aðgerða gegn peningaþvætti og úrvinnslu hæfismála.

Deildin tilheyrir sviði háttsemiseftirlits sem er eitt af tveimur eftirlitssviðum bankans. Deildin sinnir eftirliti með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á fjármálamarkaði og einnig mati á hæfi stjórnenda á fjármálamarkaði og eigenda virkra eignarhluta fyrirtækja á fjármálamarkaði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit með tilkynningaskyldum aðilum vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

  • Eftirlit með tilkynningarskyldum aðilum vegna alþjóðlegra þvingunaraðgerða

  • Mat á hæfi stjórnenda á fjármálamarkaði og eigenda virkra eignarhluta fyrirtækja á fjármálamarkaði

  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi

  • Önnur lögfræðileg verkefni

Hæfniskröfur

  • Grunnpróf ásamt meistaraprófi eða embættispróf í lögfræði

  • Þekking á löggjöf á fjármálamarkaði, t.d. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi

  • Reynsla af störfum er tengjast aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegum þvingunarráðstöfunum

  • Reynsla af störfum er tengjast mati á hæfi

  • Þekking á stjórnsýslulögum og reynsla af meðferð og vinnslu stjórnsýslumála

  • Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum

  • Áræðni, öguð vinnubrögð, heiðarleiki og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Elísabet Júlíusdóttir

forstöðumaður aðgerða gegn peningaþvætti og hæfismála

Tölvupóstur: elisabet.juliusdottir@sedlabanki.is

Telma Ýr Unnsteinsdóttir

mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar

Tölvupóstur: mannaudur@sedlabanki.is

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur – aðgerðir gegn peningaþvætti og hæfismál

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

11.12.2025