Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mannrétt­inda­stofnun Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.12.2024

Umsóknarfrestur

15.01.2025

Framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands

Embætti framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands er laust til umsóknar. Stjórn Mannréttindastofnunar Íslands skipar framkvæmdastjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn. Leitað er eftir öflugum og faglegum leiðtoga til að leiða stofnunina, sem hefur það meginhlutverk, skv. lögum um Mannréttindastofnun Íslands, nr. 88/2024, með síðari breytingum, sem taka gildi 1. maí 2025, að efla og vernda mannréttindi á Íslandi eins og þau eru skilgreind í stjórnarskrá, lögum, alþjóðasamningum og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum. Mannréttindastofnun Íslands er sjálfstæð í störfum sínum og óháð fyrirmælum frá öðrum, þ.m.t. Alþingi. Stofnunin tekur ekki ákvarðanir í einstökum málum, hefur eftirlit með framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, í samræmi við 2. mgr. 33. gr. samningsins. Einnig sinnir stofnunin réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sbr. 9. gr. laganna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mannréttindastofnun Íslands skal vinna að því að opinberir aðilar og einkaaðilar virði mannréttindi á öllum sviðum samfélagsins.

  • Annast daglega starfsemi og rekstur Mannréttindastofnunar Íslands og kemur fram fyrir hennar hönd.

  • Vera opinberum aðilum og eftir atvikum einkaaðilum til ráðgjafar um eflingu og vernd mannréttinda.

  • Hafa eftirlit með framkvæmd laga og alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda og eftir atvikum koma með ábendingar varðandi fullgildingu eða aðild að alþjóðlegum skuldbindingum sem eru til þess fallnar að tryggja mannréttindi.

  • Fjalla um ástand mannréttindamála í landinu, vekja athygli Alþingis og stjórnvalda á hugsanlegum mannréttindabrotum og koma með tillögur að úrbótum.

  • Eiga samstarf við innlendar, erlendar og alþjóðlegar stofnanir og samtök á sviði mannréttinda og stuðla að samhæfingu.

  • Skýrslugjöf til alþjóðlegra eftirlitsaðila á sviði mannréttinda.

  • Hvetja til, stuðla að og taka þátt í rannsóknum, fræðslu og opinberri umræðu um mannréttindi.

  • Veita einstaklingum sem til hennar leita leiðbeiningar, ráðgjöf og aðstoð á sviði mannréttinda, svo sem með því að leiðbeina um innlendar og alþjóðlegar kæruleiðir.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Þekking og reynsla á sviði mannréttinda.

  • Metnaður og framsýni til að leiða nýja stofnun og skapa starfsemi hennar sýn til framtíðar.

  • Farsæl stjórnunarreynsla og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.

  • Reynsla af rekstri, stefnumótun og áætlanagerð.

  • Öguð og skilvirk vinnubrögð.

  • Framúrskarandi tjáningarhæfni og öflug leiðtogahæfni.

  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

  • Góð kunnátta í ensku. Kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli er æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Skipað verður í embættið frá 1. apríl 2025. Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, verður stjórn Mannréttindastofnunar Íslands til ráðgjafar um hæfni og almennt hæfi umsækjenda.

Laun og önnur starfskjör framkvæmdastjóra eru ákvörðuð af stjórn Mannréttindastofnunar Íslands. Um er að ræða fullt starf. Framkvæmdastjóra er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf eða verkefni sem ekki samrýmast starfi hans.

Nánari upplýsingar um Mannréttindastofnun Íslands má finna í lögum 88/2024., og lögum um breytingar á lögum um Mannréttindastofnun Íslands sem samþykkt voru 18. nóvember 2024.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrirhæfni viðkomandi í starfið ásamt framtíðarsýn fyrir stofnunina. Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2025.

Umsóknir óskast sendar á www.hagvangur.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is

Þjónustuaðili

Mannrétt­inda­stofnun Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.12.2024

Umsóknarfrestur

15.01.2025