Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Íslenskar orkurann­sóknir

Upplýsingar um starf

Starf

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar

ÍSOR leitar að öflugum einstaklingi í krefjandi og spennandi starf sviðsstjóra fjármála og rekstrar. Viðkomandi mun leiða sviðið, stýra rekstri þess og stuðla að því að ákvarðanataka styðji við framtíðarsýn ÍSOR.

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar situr í framkvæmdastjórn og hefur þar mikilvægt hlutverk í stefnumótun og ákvörðunum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur og stjórnun sviðsins.

  • Ábyrgð á fjármálastjórn, reikningshaldi, fjárreiðum, gerð ársreiknings, áætlanagerð og eftirfylgni þeirra.

  • Ábyrgð á stafrænni þróun og rekstri tölvu- og gagnakerfa.

  • Framkvæmd mánaðar-, ársfjórðungs- og ársuppgjöra.

  • Rekstrargreining, samantekt fjárhagsupplýsinga og miðlun til framkvæmdastjórnar og stjórnar.

  • Kostnaðareftirlit, nýting gagna til ákvarðanatöku og eftirfylgni verkefna til að tryggja hagkvæmni í rekstri.

  • Umsjón með gjaldskrá og verðlagningu þjónustu.

  • Samskipti við fjármálastofnanir og hagaðila.

  • Yfirumsjón með fjárhagskerfum og aðlögun þeirra að þörfum ÍSOR

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði viðskipta, fjármála eða sambærilegra greina.

  • Reynsla af fjármálastjórnun og reikningshaldi.

  • Reynsla af verkbókhaldi og samningagerð er kostur.

  • Forystuhæfileikar og framúrskarandi samskiptafærni og geta til að vinna í teymi.

  • Reynsla af greiningarvinnu, framsetningu og miðlun fjárhagsupplýsinga.

  • Rík stafræn hæfni, þekking og reynsla á fjárhagsupplýsingakerfum og miðlun upplýsinga, s.s. með PowerBI.

  • Öguð og skipulögð vinnubrögð, drifkraftur og lausnamiðað hugarfar.

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

ÍSOR er meðal þekktustu ráðgjafafyrirtækja í heiminum á sviði rannsókna og þróunar í jarðhita og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem slíkt. ÍSOR starfar samkvæmt gæðavottun ISO 9001:2015.
Kjarnastarfsemi ÍSOR er víðtæk ráðgjöf á sviði jarðvísinda með áherslu á jarðhita. Einnig sinnir ÍSOR rannsóknum, kennslu og fræðslu í jarðvísindum ásamt því að hýsa starfsemi Jarðhitaskóla GRÓ sem hefur það að markmiði að byggja upp þekkingu og getu í þróunarlöndum til sjálfbærrar nýtingar vistvænna jarðvarmaorkugjafa.

Starfsfólk ÍSOR myndar þverfaglegan samstarfshóp sérfræðinga á sviði jarðvísinda og verkfræði þar sem faglegur áhugi og samvinna eru leiðarljós. Áhersla er lögð á jöfn tækifæri starfsfólks, ánægða og árangursmiðaða liðsheild og framþróun. Metnaður ÍSOR er að vera í fararbroddi þekkingar á sviði sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda og virðisskapandi lausna sem miða að því að koma jörðinni og fólki til góða.
Aðalstöðvar ÍSOR eru í Kópavogi og starfsstöð er á Akureyri.

Um 100% starf er að ræða á skrifstofu ÍSOR í Kópavogi.
Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um enda er við ráðningar í störf hjá ÍSOR tekið mið af jafnréttisáætlun. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl nk.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is).

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Þjónustuaðili

Íslenskar orkurann­sóknir

Upplýsingar um starf

Starf

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026