Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í gagnagreiningu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026

Sérfræðingur í gagnagreiningu

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf gagnasérfræðings í deild gagnamála á sviði gagna og umbóta.

Sviðið gögn og umbætur annast skipulega öflun, skráningu og úrvinnslu ýmissa hag- og fjármálagagna sem Seðlabankinn safnar í samræmi við lögbundið hlutverk sitt. Upplýsingar þessar leggja grunn að greiningum og mati bankans á mikilvægum þáttum peningamála og stöðugleika fjármálakerfis. Auk þess sér sviðið um opinbera birtingu tölulegra gagna á vef bankans. Sviðið ber jafnframt ábyrgð á verkefnastýringu og samhæfingu umbótaverkefna þvert á starfsemi bankans. Það tryggir markvissa forgangsröðun, eftirfylgni og framgang verkefna í samræmi við stefnu og lögbundnar skyldur bankans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á gögnum, greiningum og gagnalíkönum sem og umsjón innri og ytri gagnabirtinga

  • Umsjón með söfnun gagna frá fjármálafyrirtækjum og öðrum skilaaðilum

  • Þátttaka í framþróun á gagnaumhverfi bankans með aukinni sjálfvirkni í söfnun, úrvinnslu, greiningu og auðgun gagna

  • Samstarf við þróunarteymi í mótun gagnalausna bankans sem og alþjóðlegt samstarf

Hæfniskröfur

  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi á sviði viðskipta- eða hagfræði

  • Reynsla á tölulegri greiningu með Python, R og SQL

  • Þekking á vinnslu fjármálagagna

  • Reynsla af gagnavinnslu (e. compiling) greiðslujafnaðar kostur

  • Þekking á Fusion Registry er kostur

  • Áræðni, heiðarleika og metnað til að ná árangri í starfi

  • Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu

  • Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Frekari upplýsingar um starfið veita Gunnar Ormslev Ásgeirsson, framkvæmdastjóri gagna og umbóta gunnar.ormslev.asgeirsson@sedlabanki.is og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar mannaudur@sedlabanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2026

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í gagnagreiningu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026