
Þjónustuaðili
Fjarskiptastofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í greiningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Sérfræðingur í greiningum
Fjarskiptastofa leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til að taka þátt í greiningu og þróun samkeppnismála á fjarskiptamarkaði.
Um er að ræða krefjandi starf í faglegu og metnaðarfullu umhverfi. Þú verður hluti af öflugu teymi sérfræðinga þar sem hagræn, tæknileg og lögfræðileg þekking sameinast við úrlausn fjölbreyttra og mikilvægra verkefna.
Í starfinu felst að greina stöðu og þróun markaðarins, leggja mat á samkeppnisaðstæður og móta aðgerðir sem stuðla að heilbrigðri samkeppni með hag neytenda að markmiði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum.
Rýni kostnaðargreininga og kostnaðarlíkana.
Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla.
Miðlun hagfræðilegrar eða viðskiptafræðilegrar þekkingar við rannsókn mála.
Samskipti við hagaðila.
Þátttaka í erlendu samstarfi.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í verkfræði, hagfræði, viðskiptafræði, lögfræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfinu.
Góð greiningarhæfni, reynsla af greiningarvinnu, úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga.
Þekking eða reynsla af samkeppnismálum er kostur.
Þekking á atvinnuvegahagfræði er kostur.
Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í teymi.
Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að leiða mál til lykta.
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og rituðu máli. Þekking á einu Norðurlandamáli kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Fjarskiptastofa er eftirlitsstofnun á fjarskiptamarkaði og með netöryggi. Er stofnuninni m.a. ætlað það hlutverk að vinna gegn röskun eða takmörkunum á samkeppni á fjarskiptamarkaði. Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis. Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starfsmenn fái tækifæri til að sinna áhugaverðum verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Um er að ræða starf sérfræðings á stjórnsýslusviði stofnunarinnar.Fjarskiptastofa hvetur áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Auður Bjarnadóttir
Tölvupóstur: audur@vinnvinn.is
Unnur Ýr Konráðsdóttir
Tölvupóstur: unnur@vinnvinn.is

Þjónustuaðili
Fjarskiptastofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í greiningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026