Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ungliðastaða á vegum Umhverfisstofnunar SÞ á sviði stjórnunar sjávarvistkerfa í Nairóbí, Kenía

Staðsetning

Erlendis

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026

Ungliðastaða á vegum Umhverfisstofnunar SÞ á sviði stjórnunar sjávarvistkerfa í Nairóbí, Kenía

Á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) er starfrækt ungliðaverkefni (e. Junior Professional Officer Programme) þar sem ungu fólki er gefið tækifæri á að starfa á vegum stofnana SÞ undir handleiðslu reynslumikilla sérfræðinga. Umhverfisstofnun SÞ (UN Environment Programme) óskar eftir að ráða ungliða á sviði stjórnunar sjávarvistkerfa (e. Junior Programme Officer – Marine Ecosystems Management). Sérfræðingurinn verður staðsettur í höfuðstöðvum UNEP í Nairóbí í Kenía. Ungliðastöður hjá Sameinuðu þjóðunum eru opnar fyrir íslenska ríkisborgara 32 ára og yngri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ungliðinn, sem mun tilheyra deild sjávar- og strandvistkerfa, mun m.a. sinna eftirfarandi verkefnum undir stjórn verkefnastjóra:

  • Söfnun, greiningu og kynningu á upplýsingum um áætlanir og verkefni skrifstofunnar og sem tengjast endurheimt, verndun og sjálfbærri nýtingu vistkerfa hafs og stranda.

  • Stuðningi við endurskoðun árlegra vinnuáætlana og fjárhagsáætlana skrifstofunnar auk skýrslugerðar um árangur.

  • Aðstoð við gerð verkefnaskjala og eftirlit með framkvæmd verkefna í samráði við framkvæmdaaðila og viðeigandi stofnanir á landsvísu og svæðisbundið.

  • Aðstoð við gerð ársfjórðungs- og ársskýrslna, sem tengjast stefnumiðum og verkáætlunum UNEP, samþykktum allsherjarþings SÞ og umhverfisþings SÞ.

  • Taka þátt í skipulagningu funda, ráðstefna, og annarra viðburða sem miða að því að miðla upplýsingum um niðurstöður verkefna og lærdóm sem af þeim má draga.

Hæfniskröfur

  • Háskólagráða á framhaldsstigi í strandvistkerfum, sjávarvistfræði, umhverfisfræðum, auðlindafræðum, umhverfisvernd eða skyldum greinum.

  • Gerð er krafa um að umsækjandi hafi að minnsta kosti tveggja ára starfsreynslu, helst á alþjóðavettvangi, á sviði sjálfbærrar þróunar, þar á meðal í verkefnum tengdum endurheimt og verndun vistkerfa hafs og stranda, stjórnun náttúruauðlinda og annarra umhverfisáætlana og verkefna.

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi starfsreynslu frá þróunarríki. Viðeigandi reynsla úr SÞ-kerfinu eða hjá öðrum alþjóðastofnunum er kostur.

  • Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku er skilyrði. Færni í öðru SÞ-tungumáli er kostur en ekki skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

UNEP tekur ákvörðun um ráðningu en ráðið verður til eins árs með möguleika á framlengingu. Sérfræðingurinn verður starfsmaður UNEP og um launakjör fer samkvæmt reglum stofnunarinnar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026. Umsókn skal vera á ensku og skal umsækjandi senda inn ferilskrá á meðfylgjandi sniðmáti og kynningarbréf til utanríkisráðuneytisins í tölvupósti á netfangið jpo@utn.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Meðfylgjandi er einnig ítarleg starfslýsing frá UNEP á ensku. Nánari upplýsingar veitir Oddur Stefánsson á netfanginu throunarsamvinna@utn.is.

Öll kyn eru hvött til að sækja um framangreint starf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2026

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ungliðastaða á vegum Umhverfisstofnunar SÞ á sviði stjórnunar sjávarvistkerfa í Nairóbí, Kenía

Staðsetning

Erlendis

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026