Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.04.2026

Umsóknarfrestur

28.04.2026

Verkefnastjóri

Brennur þú fyrir verkefnastjórnun og góðu skipulagi og hefur menntun eða þekkingu á sviði mannvirkjagerðar, byggingaframkvæmda, áætlanagerðar og kostnaðareftirlits?

Landhelgisgæsla Íslands leitar að öflugum, útsjónarsömum og skipulögðum einstaklingi til að taka þátt í verkefnastjórnun og samræmingu á uppbyggingu framkvæmda, mannvirkja og innviða á öryggissvæðunum hér á landi (sjá auglýsingu nr. 964/2021 um landfræðileg mörk öryggis- og varnarsvæða og auglýsingu nr. 500/2025 um mannvirki og fjarskiptakerfi Atlantshafsbandalagsins og íslenska ríkisins sem nýtt eru í öryggis- og varnartengd verkefni). Um tímabundið starf er að ræða með möguleika á fastráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnastjórnun í samvinnu við aðra stjórnendur og sérfræðinga hér á landi og erlendis

  • Undirbúningur og innleiðing verkefna í samvinnu við hagsmunaaðila og þátttaka í tengdum vinnuhópum hér á landi og erlendis

  • Undirbúningur og framkvæmd í samvinnu við viðeigandi hagsmunaaðila

  • Áætlanagerð, framkvæmda- og kostnaðareftirlit

  • Eftirfylgni með heimildum, framkvæmd, umsýslu og uppgjörum verkefna

  • Upplýsingamiðlun til hagsmunaaðila

  • Tryggja að undirbúningur, framkvæmd og skjölun gagna uppfylli kröfur Atlantshafsbandalagsins

  • Ráðgjöf við stjórnendur, sérfræðinga og verktaka

  • Gerð og viðhald leiðbeininga og áætlana ásamt skýrslugerð

  • Gagnaöflun og upplýsingamiðlun

  • Viðhalda yfirsýn yfir framvindu uppbyggingar öryggis- og varnarinnviða á Íslandi

    Samskipti við hagsmunaaðila hérlendis

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis verk- eða tæknifræði og/eða á sviði bygginga, fjármála eða rekstrarverkfræði

  • Þekking á verkefnastjórnun og áætlanagerð vegna byggingaframkvæmda

  • Mjög góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta

  • Áhugi á varnarmálum

  • Afburðagóðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

  • Sjálfstæði og frumkvæði ásamt hæfni til að vinna undir álagi

  • Góð greiningarhæfni og lausnarmiðuð hugsun

  • Snyrtimennska, góð umgengni og skipulag

Starfsstöð er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og er verkefnið að mestu unnið á ensku. Vegna eðli starfsins er búseta á Suðurnesjum æskileg. Skilyrði er að viðkomandi hafi ökuréttindi.

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Frekari upplýsingar um starfið

Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins. Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska. Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Stefnt er að ráðningu sem fyrst. Um dagvinnustarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan Landhelgisgæslunnar og jafnréttisáætlunar stofnunarinnar, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Nánari upplýsingar veitir Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Birna Jónsdóttir

Tölvupóstur: helga@intellecta.is

Sími: 5111225

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.04.2026

Umsóknarfrestur

28.04.2026