Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Vörustjóri innviðar fyrir smásölugreiðslur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.01.2026
Umsóknarfrestur
02.02.2026
Vörustjóri innviðar fyrir smásölugreiðslur
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing í starf vörustjóra innviðar fyrir smásölugreiðslur, í deild viðskiptalausna og vörustjórnunar á sviði upplýsingatækni.
Sviðið sér m.a. um þróun, rekstur og viðhald á stafrænum upplýsinga- og viðskiptalausnum bankans. Deildin ber ábyrgð á högun, rekstri og framþróun viðskiptalausna Seðlabankans, en þar teljast til lausnir eins og MBK, Wallstreet, Bloomberg, Kodiak OMX, Nasdaq og Libra ásamt öðrum skilgreindum lausnum. Starf vörustjóra er ætlað að brúa bilið á milli viðskiptalegra þarfa og sjónarmiða og tæknilegs reksturs og högunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mótar framtíðarsýn og vöruáætlun
Tengiliður milli notenda, birgja og tækniteyma
Ber ábyrgð á samskiptum við hagsmunaaðila og upplýsingagjöf
Skilgreinir mælikvarða og sinnir markaðsmati
Ber ábyrgð á prófunum og útgáfustjórnun
Þátttaka í daglegum rekstri, vöktun og eftirliti
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af greiðslumiðlun
Reynsla af rekstri fjármálakerfa kostur
Áræðni, heiðarleiki og metnaður til að ná árangri í starfi.
Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
Mjög góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Frekari upplýsingar um starfið veita Axel Kristinsson, forstöðumaður viðskiptalausna og vörustjórnunar axel.kristinsson@sedlabanki.is, og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2026.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026
Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Vörustjóri innviðar fyrir smásölugreiðslur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.01.2026
Umsóknarfrestur
02.02.2026